Vorum með góða gesti í heimsókn á sautjánda júní; Söndru, Arnþór og litla bumbukrílið. Nú er farið að líða á meðgönguna en þó eru enn um 5 vikur eftir. Allt gengur vel og allir að verða voða spenntir. Fórum í gegnum gamalt barnadót og fundum ýmislegt nýtilegt sem þau skötuhjúin höfðu með sér suður. M.a. útsaumuðu kodda- og sængurverin sem mamma gerði í húsmæðraskólanum á sínum tíma og nokkra fallega kjóla bæði af mér og Söndru. Eins gott að barnið verði stelpa ;)Fyrsti dagurinn í sumarfríi í dag. Veit eiginlega ekkert hvað ég á af mér að gera... er búin að ganga frá í eldhúsinu, fara út með ruslið, ryksuga og blogga. Hmm, hvað ætti ég að gera næst...?
o


2 ummæli:
Æ það er gott að komast í sumarfrí :)
Sæl Bára Mjöll,
ertu að verða amma?? Það er yndíslegt get ég sagt þér :-)
kær kv
Skrifa ummæli