1.6.08

Á ferð um Austurland

Hef verið svo heppin að fá að ferðast dálítið um Austurland síðustu tvær vikur, eins og sjá má á símamyndunum hér fyrir neðan. En þær hef ég sent með símanum á bloggið beint frá hverjum stað.

Sunnudaginn 25. maí fórum við með starfsmannafélagi ME út í Papey. Það var alveg stórkostlegt að koma þangað, greinilegt að þar eiga lundinn og aðrir sjófuglar sér griðastað. Hefði samt verið enn skemmtilegra að fara aðeins seinna þegar allt er orðið grænt.

Síðan var verklegi hluti námskeiðsins góða í gær og fyrradag. Tilvonandi staðbundnir leiðsögumenn fóru um Seyðisfjörð og til Borgarfjarðar eystri fyrri daginn, en Fljótsdalshring og Snæfell seinni daginn. Ótrúlega gaman! Allir fengu að æfa sig og við lærðum mikið hvert af öðru.

Sjómannadagurinn í dag. Það var messa kl. 2 en eftir hana fórum við í afmæli til Höskuldar Más, sem er tveggja ára í dag. Alltaf jafngaman að hitta þá bræður :) Nína og Emma voru líka þar og náðum við að spjalla dálítið en þær fara á morgun. Hittum þær reyndar líka á balli í gærkveldi... Skrapp svo í fjallgöngu í kvöld upp á Botnabrún og tók þá panorama myndina hér fyrir neðan af firðinum fagra í ljósaskiptunum.

Hafið það gott.

3 ummæli:

Elva sagði...

hæ, hó!
Skemmtilegur sumarbústaður Kjarvals, einfaldleikinn fengið að ráða ríkjum :)

Ertu á leiðsögumannanámskeiði?

Bára Mjöll sagði...

Já, sumarbústaðurinn er bæði lítill og einfaldur. Þó var hann víst eina fasteignin sem Kjarval eignaðist um sína daga. Þetta var námskeið til að þjálfa leiðsögumenn fyrir farþega skemmtiferðaskipa sem koma til Seyðisfjarðar. Miðaðist eingöngu við þær ferðir sem þeir fara í, mjög praktískt.

Sjáumst við ekki um helgina?!

Elva sagði...

Já við sjáumst vonandi, ég bíst við að koma.