21.7.07

Good bye England - Hello Iceland!

Þetta er síðasta bloggið mitt frá Cambridge. Við erum nokkurn veginn búin að pakka niður og verið er að klára að þrífa. Í kvöld ætlum við svo út að borða á Chez Gerard með Nínu og Paul en í fyrramálið verður lagt af stað áleiðis til Íslands! Við hlökkum ótrúlega mikið til að koma heim og hitta alla, ekki síst Söndru mína og Arnþór sem ætla að koma austur um næstu helgi. En um leið þykir okkur leiðinlegt að kveðja alla hér, sérstaklega Nínu og Paul sem hafa verið alveg æðisleg allan tímann. Við ætlum samt að koma hingað aftur í október þegar útskriftin verður og er það huggun harmi gegn.

Á meðan ég man, lokaritgerðin var prentuð út, bundin inn og skilað á mánudaginn var, rúmum tveimur og hálfum tíma áður en skilafresturinn rann út sem er besti árangurinn minn í vetur. Mig langar að þakka allan stuðning, kveðjur og hamingjuóskir í þessu sambandi, takk allir sem hafa hugsað til mín! Veturinn var bæði krefjandi og skemmtilegur, ég hef lært mikið og við öll sem vonandi kemur okkur til góða í framtíðinni.

Það var eitt sem við áttum eftir að gera áður en við færum heim og í fyrradag drifum við okkur loksins út á bát eða 'punting' eins og það kallast hér. Það var alveg hrikalega gaman og skiljum við ekkert í okkur að hafa ekki farið áður svo við hefðum getað farið oftar. Veðrið var líka með besta móti aldrei þessu vant. Þeir feðgar spreyttu sig báðir á stönginni og voru fljótir að komast upp á lag með að ýta og stýra með henni. Þetta verður pottþétt aftur á dagskrá hjá okkur næst þegar við komum hingað.

En á morgun sem sagt lýkur þessari ársdvöl okkar hér sem hefur verið ótrúlega fljót að líða, þegar við leggjum af stað á drekkhlöðnum bílnum norður á bóginn. Fyrstu nóttina verður gist í Lake District eða Vatnahéraðinu og þá næstu í Skotlandi einhvers staðar. Seint á þriðjudagskvöld förum við um borð í Norrönu í Scrabster og verðum komin heim fimmtudagsmorguninn 26. júlí. Þá tekur við nýr kafli a.m.k. hjá mér því ég byrja í nýrri vinnu eftir verslunarmannahelgi sem kennslustjóri fjarnáms hjá ME, VA og FAS eða öllum framhaldsskólunum á Austurlandi. Það verður án efa mjög spennandi.

Enda þetta á mynd úr teboðinu í The Orchard sem ég talaði um í síðasta bloggi.

Good bye Cambridge, and thanks for everything. See you soon.

7 ummæli:

Elva sagði...

Vá, tíminn á Englandi bara búinn! Í raun finnst mér ekki svo langt síðan við fórum í berjamó í Skálavík í ágúst í fyrra, en samt er svo margt búið að gerast í millitíðinni. Ég er ekki heldur alveg að fatta að dvölinni okkar hér á NZ sé að ljúka. ÉG er ekki frá því að það séu svolitlar blendnar tilfinningar sem hrærast um í manni þessa daganna.

Gangi ykkur vel á ferðalaginu til Íslands og vonandi sjáumst við fljótlega á klakanum góða :)

Hannes sagði...

Heilar heilsur að handan !

Nafnlaus sagði...

Hæ öll.
Góða ferð heim, hlökkum til að sjá ykkur.
kv. Ólafía og co

Nafnlaus sagði...

Góða ferð! Passið ykkur á vatnsaganum
sem okkur skilst að sé sums staðar á vegunum norður England.
Við hlökkum til að hitta ykkur um aðra helgi.
Kærar kveðjur frá mömmu og pabba.

Nafnlaus sagði...

Já, góða ferð!
Vonandi finnið þið færa leið norður í Skotland, kanski vissara að hafa hvítbotna gúmmískó uppi við a.m.k.!

Hlakka til að hitta ykkur um verslunarmannahelgina!
Ásdís

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ
Já þetta ár er búið að vera fljótt að líða. Finnst bara eins og það hafi verið í gær þegar við borðuðum öll saman í Botnahlíðinni og kvöttum ykkur :)
Vonandi eigið þið góða ferð framundan og allt gangi vel hjá ykkur. Hlökkum til að sjá ykkur. Bestu kveðjur úr Fellabænum, Helga Dögg og strákarnir

Bára Mjöll sagði...

Ótrúlegt en satt, erum komin heim reynslunni ríkari eftir rúmlega 11 mánaða dvöl í Bretaveldi. Og ég skal segja ykkur það að alltaf er nú jafngott að koma heim :) Ferðin gekk vel og sluppum við alveg við flóð og aðrar náttúruhamfarir á leiðinni. Blogga þegar við erum aftur komin í netsamband heima. Bestu kveðjur til ykkar allra og hafið það gott.