Set hérna með mynd af æðislegri Pavlovu tertu sem við fengum í eftirrétt hjá Nínu um síðustu helgi. Það var 'Big Weekend' á Parker's Piece og við fórum þangað eftir matinn að horfa á flugeldasýningu sem eru greinilega mjög vinsælar hér því við heyrum sprengingar næstum annað hvert kvöld en sjáum ekki mikið fyrir trjánum... Nema hvað, þessi sýning sem við sáum á föstudagskvöldið var nú ekki merkileg miðað við Guy Fawkes day í haust, en við erum enn að tala um þá glæsisýningu. Svo skruppum við aftur á Parker's Piece kvöldið eftir að sjá og heyra Balkan Beat Box, skemmtilega hljómsveit frá New York held ég. Annað hefur ekki verið gert síðan síðast fyrir utan þá skrifin auðvitað, en nú gæti orðið breyting á því. Erum t.d. að plana að fara í te í The Orchard í Grantchester um helgina - ef það verður sól ;)
12.7.07
Fréttir af skrifum

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

12 ummæli:
Til hamingju með þennan áfanga! Glæsilegt!
Vonandi fáið þið góða veðurdaga þennan síðasta tíma í Cambridge að þessu sinni.
Við erum farin að hlakka til að sjá ykkur!
Nú er sá tími kominn að allt er fullt
í gistingunni meira og minna alla daga, en allt gengur vel (eins og smurð vél).
Bestu kveðjur, frá mömmu og pabba
Hamingjuóskir héðan að "norðan". Það verður gaman að hitta ykkur, þegar þið mætið heim á klakann.
Því miður verðum við ekki heima því við ætlum að vera úti á Spáni í hálfan mánuð og komum heim 10. ágúst.
Kveðja
Kata
Mikið ertu dugleg Bára Mjöll, ég óska þér til hamingju með að vera búin með ritgerðina. Þú tekur svo bara doktorinn við tækifæri!
Þetta hefur örugglega verið skemmtilegur tími hjá ykkur þarna úti og lærdómsríkur.
Ég er núna í sveitinni og sé um gistinguna núna í viku. Mamma og Siggi skruppu suður. Það er nóg að gera og mér finnst gamana að grípa í þetta.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Inga.
Gleymdi að minnast á tertuna.....ekkert smá flott!!
Hefði ekki verið amalegt að smakka á henni..namm,nammm!!!!!!
Hæ, hæ.
Til hamingju með lokin á skrifunum og þú ferð örugglega í doktorinn fljótlega. Hér er farið að rigna loksins. En vonandi ekki lengi.
Góða helgi til allra.
kv. Ólafía
Takk mamma og pabbi, takk Kata, takk Inga og takk Ólafía! Ég trúi því varla enn að þetta sé að hafast en það verður góð tilfinning að skila verkefninu á mánudaginn :)
Þar sem það var sólskin í dag þá drifum við okkur í te til Grantchester eins og við vorum búin að plana, alveg yndislegt. Svo er reyndar búið að spá rigningu eða a.m.k. skúrum út vikuna, en við sjáum nú til...
Bestu kveðjur til Íslands, hlökkum til að sjá ykkur öll!
Keep up the good work !
mmm... ekkert smá girnileg Pavlova!
Til hamingju með ritgerðina Bára Mjöll mín og njótið síðustu daganna í UK.
Vetrarkveðja úr "neðra".
Sæl Bára Mjöll,
gott að heyra hvað þetta hefur gengið vel hjá þér og til hamingju!! Því miður kemst ég ekki núna........... heyrumst fljótlega Kær kv. Helle
Langt síðan ég hef litið hér við, en oft hugsað til ykkar í rigningunni. Við Siggi erum í sumarfríi, en Inga Arnhildur hefur allt á sínum herðum í Helluhrauni 13 um þessar mundir.
Fórum á Strandir alveg í Norðurfjörð og gistum í Hótel Djúpu Vík. Erum svo að dúlla okkur í blíðunni í Reykjavík og heimsækja vini og kunningja á milli þess sem við sitjum á pallinum í Álfaheiði 2 og sleikjum sólina!
Til hamingju með að vera að sauma að ritgerðinni!
Ertu búin að fara á nýjasta bloggið frá Elvu og Hannesi?
Hlakka til að hitta ykkur eftir hálfan mánuð, eða svo.
Kær kveðja frá okkur Sigga og gangi ykkur vel heim!
HÚRRA !!!!
TIL HAMINGJU MEÐ þennan STÓRA ÁFANGA
Njótið vel síðustu daganna og hittumst heil.
Kærar kveðjur, Solla og co
Til hamingju með áfangann! Loksins loksins:) Skil þig vel með þessar blendnu tilfinningar gagnvart því að þetta sé búið;)
Skrifa ummæli