15.5.06

Meira um háskólaumsóknir

Það tekur á að bíða eftir svari. Þegar ég fór að reyna að ýta á eftir þeim í Cambridge, þá skelltu þeir á mig ekki einu, heldur tveimur skriflegum verkefnum! Það var törn, en hafðist og á mettíma meira að segja. En nú veit ég ekkert hvað þeir ætla að vera lengi að lesa yfir þetta og ákveða sig.

Ekki má gleyma því að það kom bréf frá Kennaraháskólanum með póstinum í dag og þeir eru búnir að veita mér inngöngu næsta vetur. Það er þó léttir að vita að plan B er öruggt.

2 ummæli:

Hannes sagði...

Þetta er allt að koma greinilega...

Nafnlaus sagði...

já, alltaf gott að hafa plan B!