27.4.05

Kundalini

Hugleiðslunámskeiðið er mér ofarlega í huga, enda stendur það enn yfir og nær hámarki á sunnudaginn kemur. Þessa vikuna erum við að hugleiða á rótarstöðina þar sem kveikt hefur verið bál til að brenna alls konar drasl úr fortíðinni sem engin ástæða er til að burðast með. Alveg ótrúlega góð tilfinning skal ég segja ykkur. Svo verður lokainnsetningin á sunnudaginn kemur - þá verður flugeldasýning, sagði einhver. Spennandi!

Hef ekki tíma til að skrifa meira, er að fara að hugleiða...

Engin ummæli: