Jæja, nú hefur tíminn aldeilis flogið frá mér hér á blogginu.
Að venju hefur mikið verið um að vera; kirkjukórsferðin í Mývatnssveit var auðvitað alveg æði, vorfundur starfsfólks bókasafna á Austurlandi var haldinn í Neskaupsstað 8. apríl og lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fyrir norðurhluta Austurlands fór fram hér í Seyðisfjarðarkirkju 12. apríl. Allt saman mjög skemmtilegt og vel heppnað en ég held samt að hugleiðslunámskeiðið sem ég byrjaði á um síðustu helgi, standi upp úr.
Þetta er námskeið í Kundalinihugleiðslu hjá Kristbjörgu og ég hef bara varla komið niður á jörðina síðan og einhvern veginn ekki alveg verið að hugsa um tölvur eða bloggheima. Við eigum að hugleiða tvisvar á dag, korter í senn, núna í tvær vikur, þá fáum við annan tíma og þann þriðja einni viku eftir það. Í námskeiðslýsingunni stendur m.a. þetta:
"Við ástundun Kundalinihugleiðslu styrkist minnið, einbeitingin eflist og hugurinn verður skýrari. Innri heilunarkrafturinn eykst og fær tækifæri til að endurnýja og heila líkamann. Kundalinihugleiðslan eflir gleði og bjartsýni og gefur okkur sætti og hugarró."
Ekki amalegt það - og ég er ekki frá því að hún sé þegar farin að virka!
Annars vorum við á skíðamóti í dag. Þetta var Björnsmót og það er fyrsta skíðamótið sem Stefán fer á í vetur þar sem hann missti af páskamótinu í Oddskarði. Aðeins var keppt í stórsvigi og því miður var Stefán eini strákurinn í sínum flokki en hann renndi sér mjög vel og kom niður á aðeins betri tíma en Jóna sem var fyrst af stelpunum. Það er eiginlega ótrúlegt hvað hægt hefur verið að hafa mikið opið í Stafdal í vetur því það hefur fjandakornið ekki verið neinn snjór í fjallinu! En nú er sko stefnt á Andrés og vonandi helst snjórinn þar fram yfir leikana.

Björnsmótsmeistari í stórsvigi 12 ára drengja 2005

2 ummæli:
Það er nú verra með Andrés.
Í morgun var tíu stiga hiti á mælinum og búið að vera blíða í allan dag. Ekki hvasst til allrar hamingju. En við erum búin að pakka skíðagræjunum upp á háaloft.
Kata
Ja, það er nú eins gott að það verði einhver snjór, því það eru allir að leggja af stað á Andrés á morgun. Kemst reyndar ekki sjálf, 10. bekkur þarf að fá sína íslenskutíma, svo feðgarnir fá að fara einir...
Skrifa ummæli