20.3.05

Páskafrí :)

Jæja - það er bara komið páskafrí! Loksins. Ég heiti því hér og nú að taka aldrei, aldrei framar að mér meira en 100% vinnu. Maður verður bara að fara að átta sig á því að maður er ekki endalaust á þrítugsaldrinum, hvað þá fertugsaldrinum. Jæja.

Afmæli Stefáns kom og fór. Hann bauð nokkrum bestu vinum sínum á sjálfan afmælisdaginn 9. mars, en svo buðum við fjölskyldunni í "brunch" sunnudaginn á eftir. Það heppnaðist allt saman mjög vel eins og sést á þessum myndum:


Frá vinstri: Kristján, Gummi, Jóna, Gauti, Atli og Stefán.


Fjölskyldu "brunch" og fólk tekur vel til matar síns.


Krakkarnir voru við kringlótta borðið. Kristján Jakob að borða jarðarber, namm.

Síðasta vika var líka frekar annasöm, t.d. var skólaskemmtun 1.-6. bekkjar á þriðjudagskvöldið og lestrarhátíð skólans kvöldið eftir, en þar voru valdir keppendur Seyðisfjarðarskóla á Stóru upplestrarkeppninni í vor. Leikritið Litla hafmeyjan var sýnd á skólaskemmtuninni og tókst það framar vonum.
Við vorum líka mjög ánægð með lestrarhátíðina, hún var haldin á Hótel Öldunni sem skapaði mjög skemmtilega og notalega umgjörð um keppnina. Sandra Ólafsdóttir og Andrea Hlín Guðnadóttir urðu hlutskarpastar og til vara var valinn Kristján Smári Guðjónsson. En þar sem hann verður ekki heima þegar lokahátíðin fer fram þann 12. apríl, þá hefur Jóna Ólafsdóttir tekið hans sæti.

Ég ætla að láta fljóta hérna með mynd af páskaeggjunum okkar. Það skal tekið fram að Stefán fékk þetta stóra í afmælisgjöf, en hver haldið þið að eigi hin?

Engin ummæli: