22.3.05
Hverjir eru bestir í faginu...
... og fara næstum aldrei út af laginu? Stuðmenn! Vorum að koma úr Herðubreiðarbíói þar sem við sáum nýju Stuðmannamyndina "Í takt við tímann". Alveg ótrúlegt hvað þau geta verið endalaust fersk. Myndin var hin besta skemmtun og gefur hinni fyrri lítið eftir. Ég veit samt ekki hvort frasarnir verða klassískir eins og í "Með allt á hreinu". Meira að segja Stefán kannast við suma þeirra og mörg laganna þó hann hafi aldrei séð myndina. Það er samt aldrei að vita...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli