10.1.09

Í upphafi árs

Hér eru tvær góðar saman; Ásdís Hannes-dóttir til vinstri og Amelía Rún Arnþórs-dóttir til hægri. Báðar fæddar árið 2008, Ásdís í febrúar en Amelía í ágúst. Frænkur í 3. og 4. lið frá þeim sæmdar-hjónum Báru og Illuga á Bjargi. Myndin var tekin í stórskemmtilegu jólaboði á annan í jólum að Helluhrauni 13 í Mývatnssveit. Hlakka til að sjá ykkur aftur ponturnar mínar.

En nú eru jól og áramót liðin og hversdagsleikinn aftur tekinn við. Hjá mér hefur verið nóg að gera í vinnunni eins og alltaf í upphafi annar við að koma náminu af stað. Stefán er að hefja sína aðra önn í menntaskólanum og ætlum við að halda áfram að keyra á milli a.m.k. á meðan veður og færð haldast sæmileg. Jóhann er aftur farinn að vinna upp í Fljótsdalsvirkjun við verkefni sem þeir voru svo heppnir að fá þar í haust. Nú er reyndar farið að sjá fyrir endann á því og kannski ekki góðar horfur hjá þeim eftir það. Nema það komi loðna en það getur nú verið erfitt að treysta á hana.

En verður maður ekki að vera bjartsýnn?
.

3 ummæli:

Elva sagði...

Æi þær voru svo sætar og skemmtilegar saman. Bestu kveðjur austur!

Nafnlaus sagði...

Snúllurnar - ekkert smá fallegar og flottar ;)
Bestu kv. Kristbjörg :)

Nafnlaus sagði...

góð mynd!
//Hannes