Þetta er frasi sem oft hljómar í auglýsingatímum fjölmiðlanna þessa dagana. Kannski ekki svo vitlaus heldur. Verðum við ekki að leyfa okkur að hlakka til jólanna og reyna að halda í þær hefðir sem skapast hafa í aðdraganda jóla hjá hverri fjölskyldu? Ég held það. Við verðum að halda okkar striki og reyna að lifa lífinu eins eðlilega og mögulegt er á þeim óvissutímum sem nú eru uppi. Reyndar virðist loks vera farið að rofa til; Icesave deilan leyst segja þeir og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ætlar að taka umsókn okkar fyrir í næstu viku, loksins. Ég vona að ráðamenn beri gæfu til að leysa þessi mál á farsælan hátt og að upp úr kreppunni rísi nýtt og betra þjóðfélag á Íslandi. En þá þarf virkilega að taka til hendinni.Kirkjukórinn heldur svo sannarlega sínu striki og hélt í dag tónleika til heiðurs Steini Stefánssyni fyrrverandi skólastjóra og organista á Seyðisfirði en hann hefði orðið 100 ára á þessu ári. Sungin voru lög eftir Stein og aðra úr fjölskyldu hans og inn á milli rifjaði samferðarfólk hans hér upp kynni sín af honum. Í lokin komu fram bæði Ingólfur og Kristín Steinsbörn og minntust föður síns. Kirkjan var full af fólki og stundin var virkilega góð og notaleg. En nú þarf að bretta upp ermar og fara að æfa jólalögin... aðventuhátíð eftir þrjár vikur!
Dagur íslenskrar tungu er í dag og vil ég óska Herdísi Egilsdóttur til hamingju með verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem hún hlaut af því tilefni..
.


3 ummæli:
Mmmm... jólaundirbúningurinn er góður tími! Baka smákökur, borða smákökur, skrifa jólakort, kaupa gjafir, föndra aðventukrans, gera laufabrauð og síðast en ekki síst, finna jólatré og drekka malt&appelsín :)
Bestu kveðjur í fjörðinn ykkar fagra!
Akkúrat. Munum að jólin eru hátíð ljóss og friðar.
//Hannes
Mikið rétt. Ég þurfti aðeins að minna sjálfa mig á þetta - og leyfa mér að hlakka til jólanna ;)
Skrifa ummæli