5.8.08

Komin heim...

Já, við erum komin heim eftir þetta líka fína sumarfrí fyrir sunnan. Hitabylgjan gerði að verkum að okkur leið eins og við værum í útlöndum og ekki hægt annað en að njóta bara lífsins. Vorum til skiptis á Laugarvatni (og nágrenni) og í Reykjavík og eyddum heilmiklum tíma með Söndru og Arnþóri. Það var alveg frábært því venjulega hittum við þau nú ekki alveg á hverjum degi.

Barnabarnið lætur bíða eftir sér og er enn ekki komið í heiminn, þó komið sé eina og hálfa viku fram yfir settan dag. En biðin fer nú að styttast því farið er að tala um að setja fæðinguna af stað hvað úr hverju.

Ef sumarfríið væri ekki búið, þá hefðum við ekkert verið að fara heim fyrr en eftir það. En ætli við rúllum ekki bara aftur suður um næstu helgi úr því sem komið er...
.

3 ummæli:

Elva sagði...

Og spennan er í hámarki! Ég vona að maður sjái fréttir hér á síðunni þegar nýjasti fjölskyldumeðlimurinn lítur dagsins ljós :)

Bestu kveðjur austur!

Bára Mjöll sagði...

Já já, lofa að setja fréttir hingað inn þegar eitthvað gerist... og líklega verður það strax á morgun, því nú hefur verið ákveðið að setja fæðinguna af stað í kvöld!

Nafnlaus sagði...

Til Hamingju Með Ömmustelpuna :*

Hvað var hún stór? Amma var ekki alveg með það á hreinu!
Bið að Heilsa Öllum =)