23.7.08

Sumar

Já, það er sumar og sólin skín. Allt er grænt og blómskrúð hvert sem litið er. Lækirnir skoppa niður fjallshlíðarnar og Búðarárfoss leikur við hvern sinn fingur. Sjórinn er svo til sléttur, aðeins örlítill andvari í trjánum. Við erum að pakka niður fyrir suðurferð.

Ætlum að dvelja í íbúð á Laugarvatni í eina viku og freista þess að vera í kallfæri þegar litla barnabarnið kemur í heiminn. Nú styttist í settan dag - allt samt rólegt eins og er - og ég hef lofað að setja tilkynningu hér inn og jafnvel líka mynd, þegar það gerist. Get vonandi staðið við það.

Sumarfríið mitt verður nánast búið þegar við komum til baka en það hefur liðið undrafljótt, enda ýmislegt í gangi eins og sjá má af myndunum hér fyrir neðan. Hef verið heldur löt að skrifa en læt myndirnar tala.

Góðar stundir!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bara að láta vita að ég var hér á ferðinni, bara að athuga málin :) Bestu kveðjur úr Fellabænum