6.9.06

Næstum vika af september

Nú erum við búin að vera hér í Cambridge í rúmar tvær vikur og það er kominn tími á langt blogg. Við höfum haft nóg að gera við að koma okkur fyrir, en við búum í íbúð sem háskólinn á í góðu og vinsælu hverfi nálægt miðbænum. Bill Gates á meira að segja hús hérna í hverfinu, enda er Microsoft með talsverða starfsemi í Cambridge.

Íbúðin er fín, tvö þokkaleg svefnherbergi og stofa með útskotsglugga á þriðju hæð í blokk. Fyrir utan stofugluggann er risastórt tré, þannig að þegar maður horfir út um gluggann þá er næstum eins og maður sé uppi í trénu! Húsið stendur alveg við ána og hinum megin við hana er garður með fleiri risastórum trjám. Gatan liggur fyrir endann á blokkinni, hinum megin við aðra blokk þannig að við erum á mjög rólegum stað þó við séum rétt við miðbæinn. Handan við götuna er annað grænt svæði þar sem eru leiktæki, buslulaug og pláss til að leika sér í fótbolta. Aðeins lengra eru svo tennisvellir og meira að segja golfvöllur. Þá er maður eiginlega kominn út í sveit.

Við erum öll komin á hjól eins og flestir aðrir hérna. En það er mikið af fólki og mikil umferð á götunum. Ég verð að viðurkenna að ég er stundum alveg skíthrædd þegar kannski tveggja hæða strætó brunar fram úr manni og það eru ekki nema nokkrir sentimetrar á milli! Ég verð líka að viðurkenna að ég er ekki mjög örugg á hjólinu og er búin að detta þrisvar sinnum. Ekki alvarlega sem betur fer, bara nokkrar rispur og marblettir, en núna síðast datt ég beint á nefið ofan í brenninetlubeð og það er sko ekki þægilegt. En allt er þegar þrennt er og vonandi var þetta síðasta byltan. Við erum líka óðum að uppgötva hjólastígana sem eru hér út um allt og eru miklu betri en umferðargöturnar.

Stefán byrjaði í skólanum á mánudaginn og er um korter að hjóla þangað. Hann er búinn að fá skólabúning sem eru dökkbláar buxur, peysa og sokkar, ljósblár pólóbolur og svartir skór. Hann er bara sáttur við þetta - það hefði getað verið verra. Við vonum að hann kynnist fljótlega einhverjum krökkum því honum var hálfpartinn farið að leiðast áður en skólinn byrjaði.

Jóhann er ekki enn búinn að fá fasta vinnu en hann fer í viðtal á morgun á verkstæði hjá háskólanum. Hann var svo heppinn að hitta mann í þvottahúsinu (sameiginlegt fyrir báðar blokkirnar) sem bauðst til að útvega honum þetta viðtal. Það væri mjög spennandi fyrir hann að komast þar að.

Skólinn byrjar ekki hjá mér fyrr en eftir mánuð, en ég er búin að fá bókalista og þarf að fara að útvega mér þær og byrja að lesa og undirbúa mig.

Það er svo margt búið að gerast, það er ekki séns að ég geti skrifað um það allt. Nína og Paul hafa reynst okkur frábærlega, það er sko ómetanlegt að eiga þau að hérna. Við fórum t.d. með þeim til London um daginn og hittum Emmu. Mjög skemmtilegt. Pálmi bróðir kom líka hérna við með strákana sína og var mjög gaman að fá þá í heimsókn. Vonandi eiga margir eftir að koma í heimsókn, því það er dálítið skrítið að hugsa um það að koma ekki til Íslands fyrr en eftir tæpt ár. Ég er eiginlega strax farin að hlakka til að koma heim aftur. En ég veit að ég á samt eftir að sakna stóra trésins fyrir utan útskotsgluggann minn...

Skrifa meira næst.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta hljómar mjög vel þarna hjá ykkur, umhverfið og allt. Það verður gaman að fylgjast áfram með ykkur.

Við Hannes erum að fara norður um helgina og verðum þar í viku. Í tilefni sextugsafmælis mömmu ætlum við systkinin og mamma og Siggi að fara í bústað í Skagafirði þar næstu helgi (16.-17. sept) og svo fljúgum við út 19. sept.

Kveðja til ykkar allra!

Nafnlaus sagði...

Sæl Bára mín, mátti til með að senda smá kveðju héðan frá Egilsstöðum. Gott að heyra að allt gangi svona vel hjá ykkur. Ég er að reyna átta mig á hvar þið eigið heima en kem því ekki alveg fyrir, voðalega er maður fljótur að gleyma, bjó þarna sjálf í 2ár!!!!
Bið kærlega að heilsa körlunum þínum, Nínu og Paul og allir biðja heilsa hér úr Dalbrúninni. Þið fylgist svo með okkur á barnalandinu. Bestu kveðjur Helga Dögg

Nafnlaus sagði...

Sæl og blessuð!
Gott að heyra að þið eruð búin að koma ykkur vel fyrir og að allt (flest) hefur
gengið vel.
Hér er allt næstum því á fullu, en það er þó byrjað að hægjast dálítið um.
Erum með 30 í gistingu í nótt.
Haustlitirnir eru varla farnir að láta á sér kræla, næstum allt grænt enn (nema þá bláberjalyngið sem er víðast hvar blátt yfir að líta!
Bestu kveðjur til ykkar allra,
pabbi og mamma.

Bára Mjöll sagði...

Elva; Góda skemmtun í bústadnum og bestu afmæliskvedjur til mommu tinnar - og viltu líka skila "til hamingju med afmælid um daginn" kvedju til Ingu. Gengur ekki vel hjá henni í kennslunni?

Helga Dogg; Manstu eftir pub sem heitir The Granta, alveg vid ána? Vid hlidina á honum er veitingastadur sem heitir Bella Italia og svo kemur húsid okkar Causewayside vid Fen Causeway rétt hjá Newnham á leidinni til Grantchester. Fattaru? Kvedja til ykkar allra.

Pabbi og mamma; Takk fyrir kvedjuna, gaman ad heyra frá ykkur hér. Vedrid hérna í Cambridge hefur verid ótrúlega gott, um 30 stiga hiti í dag og sól. All grænt enn líka hér en lítid um bláberjalyng. Bidjum kærlega ad heilsa.