Hann er runninn upp, dagurinn þegar við förum í fríið! Síðasti vinnudagur kennara í Seyðisfjarðarskóla er í dag og við leggjum af stað suður í hádeginu. Við ætlum að gista á Skaganum í nótt og svo fljúgum við til Englands á morgun. Þar ætlum við að dvelja næstu 11 daga.
Skólaslit voru í gær kl. 18 og lokahóf hjá kennurum um kvöldið. Að venju var farið í alls kyns leiki og þrautir í kalsa rigningu áður en dýrindis pottréttur a la Solla var snæddur inni í Fjarðarseli. Allir voru glaðir og kátir - fegnir að þessi verkfallsvetur (sem lýst var sem vetri innan sviga á síðasta fag- og árgangafundi) er búinn.
Minningarathöfn um verkefna- og prófabrennur fyrri ára verður haldin í dag kl. 15, þannig að ég missi því miður af henni, en bið að heilsa öllum.
Það er aldrei að vita nema ég sendi hér inn kveðju frá Englandi ef ég kemst í tölvu í fríinu... en nú er best að fara að klára að pakka.
9.6.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


2 ummæli:
Góða skemmtun í Englandi!!
góða ferð til Englands og skemmtið ykkur vel. Því miður fékk ég ekki bústað fyrir austan í sumar eins og ég vonaðist til. (veit reyndar ekki um neinn sem fékk úthlutað hjá KÍ í sumar en þekki marga sem sóttu um). En það er aldrei að vita nema við skjótumst eitthvað!!
Skrifa ummæli